Hjúkrunarfræðingur / ljósmóðir í ung- og smábarnavernd
Vilt þú vinna í fjölskylduvænu umhverfi og vera hluti af öflugum hópi starfsfólks?
Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi eða ljósmóðir til starfa í ung- og smábarnavernd. Um er að ræða 50-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Við erum að leita að einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni. Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef heilsugæslunnar (https://island.is/hh)
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið er ung- og smábarnavernd innan heilsugæslu.
Ung- og smábarnavernd
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.
Opin og bókuð móttaka
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Áhugi og reynsla af starfi með börnum
- Þekking og áhugi á heilsueflingu og forvarnarstarfi
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Vildís Bergþórsdóttir - vildis.bergthorsdottir@heilsugaeslan.is - 821-2160
HH Efra Breiðholti hjúkrun
Hraunbergi 6
111 Reykjavík