Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir hjúkrunarfræðingi til að sinna starfi málastjóra hjá Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Fjölmörg tækifæri eru innan teymisins til að efla faglega þekkingu og sérhæfingu, þar sem teymið er í stöðugri þróun. Um er að ræða 70- 100% ótímabundið starf og ráðið er í starfið frá 1. október eða eftir nánara samkomulagið.

Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir einstaklinga sem eru 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og /eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins eru jafnframt oft með fjölbreyttan taugaþroska og aðra sjúkdóma, svo sem einhverfu. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu innan teymisins og náið samstarf þvert á heilbrigðis- og velferðarþjónustu um land allt.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu, þar sem teymisvinna, fagmennska og góður starfsandi eru í fyrirrúmi. 

Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu teymi þar sem þverfagleg samvinna og fagleg þróun eru lykilþættir. Ef þú hefur áhuga á að sinna mikilvægu og áhrifaríku starfi með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga, þá er þetta rétta tækifærið. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Málastjórn  
  • Einstaklingsmiðuð hjúkrun 
  • Meðferðarvinna
  • Gerð meðferðaráætlana, endurmat og eftirfylgd
  • Umsjón og heildarsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
  • Ráðgjöf og fræðsla til notenda, aðstandenda og stuðningsaðila
  • Skipuleggur og veitir fjölskyldustuðning
  • Heilsufarsmælingar og ráðgjöf
  • Þátttakandi í þverfaglegu teymi
  • Þátttaka í að efla og innleiða nýjungar í starfi

Viðkomandi mun starfa í þverfaglegum teymum í náinni samvinnu við starfsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu á landsvísu, geðsviðs Landspítala, annarra stofnana og samtaka.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi frá Embætti landlæknis
  • Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun er kostur
  • Hagnýt starfsreynsla 
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót 
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Hæfni og áhugi á teymis-og verkefnavinnu
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bjargey Una Hinriksdóttir - bjargey.una.hinriksdottir@heilsugaeslan.is - 513-6750

Valgerður Bára Bárðardóttir - valgerdur.bara.bardardottir@heilsugaeslan.is - 513-6750

HH Geðheilsuteymi HH Taugaþroskaraskanir
Skógarhlíð 18
105 Reykjavík

Sækja um starf »