Klínískur lyfjafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Klínískur lyfjafræðingur óskast í 20% ótímabundið starf við Heilsugæsluna Hlíðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Hlíðum starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu.
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stofnun og umsýsla miðlægs lyfjakorts
- Framkvæmd lyfjarýnis og yfirferð skömmtunarkorta skjólstæðinga
- Aðstoð við niðurtröppun og afvísun lyfja, þar á meðal gerð einstaklingsmiðaðra áætlana og eftirfylgni við þær
- Móttaka, ráðgjöf og mat á lyfjatengdum málum skjólstæðinga, svo sem aukaverkunum, milliverkunum og öðrum lyfjatengdum einkennum í þverfaglegu samstarfi
- Fræðsla og ráðgjöf til skjólstæðinga um lyf og lyfjameðferðir
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi, fræðslu og miðlun þekkingar innan heilsugæslunnar þar á meðal ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks um lyfjatengd mál
- Umsýsla og svörun lyfjatengdra erinda í Heilsuveru ("Mínum síðum")
- Samskipti við Lyfjastofnun og heildsala m.a. vegna lyfjaskorts og tilkynninga um aukaverkanir
- Handleiðsla starfsfólks og/eða nema og þátttaka í þróunarstarfi
Hæfnikröfur
- Cand.Pharm/MSc í lyfjafræði
- MS í klínískri lyfjafræði
- Starfsleyfi útgefið af Landlækni
- A.m.k. 3 ára starfsreynsla sem klínískur lyfjafræðingur
- Reynsla af starfi í heilsugæslu kostur
- Góð almenn tölvuþekking (word, excel, powerpoint, outlook).
- Almenn þekking á sjúkraskrárkerfum s.s. Sögu og Heilsugátt
- Mjög góð tök á rituðu íslensku máli
- Almenn enskukunnátta
- Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
- Mjög góðir samskiptahæfileikar
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 20 - 20%
Umsóknarfrestur er til og með 17.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Svavarsdóttir - hildur.svavarsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5900
HH Hlíðum lækningar
Skógarhlíð 18
105 Reykjavík