Talmeinafræðingar - Heyrnar og talmeinastöð HH
Vilt þú taka þátt í að þróa nýtt verkefni talmeinafræðinga í skólaþjónustu?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að reyndum talmeinafræðingum til starfa í nýtt og spennandi starf hjá Heyrnar og talmeinastöð. Markmið verkefnisins er að þróa verklag sem miðar að því að veita talþjálfun í nærumhverfi barna. Starfað verður í þverfaglegum teymum í nokkrum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Um er að ræða 70-100% tímabundið starf til tveggja ára og í boði eru nokkrar stöður talmeinafræðinga. Ráðið er í starfið frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni talmeinafræðing sem starfar undir handleiðslu reynslumeiri talmeinafræðings.
Helstu verkefni og ábyrgð
Talmeinafræðingur sinnir meðferð tal- og málmeina innan þeirra grunnskóla sem verkefnið nær til í samvinnu við aðra fagaðila. Hann ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum bestu meðferð og þjónustu sem í boði er á hverjum tíma. Talmeinafræðingur mun stjórna og skipuleggja þjónustu og meðferð innan sinnar starfsstöðvar auk þess að meta árangur meðferðar. Hann er leiðandi í gagnreyndum aðferðum og ber ábyrgð á að innleiða nýjungar í meðferð og þjónustu á starfstöð.
Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
- Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið 6 mánaða verklegri þjálfun undir handleiðslu reynds talmeinafræðings en einnig er handleiðsla í boði
- Sérþekking á málþroska barna/unglinga
- Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
- Reynsla og áhugi á talþjálfun og almennri meðferð talmeina
- Góð þekking á máltöku barna með dæmigerðan málþroska, frávikum í málþroska og frávikum í málhljóðamyndun/framburði hljóða
- Góð þekking á snemmtækri íhlutun m.t.t. barna með frávik í málþroska
- Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Mjög góð skipulagshæfni, færni í forgangsröðun og sveigjanleiki
- Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
- Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Hreint sakavottorð
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Anna Ósk Sigurðardóttir - anna.osk.sigurdardottir@heilsugaeslan.is - 513-6500
HH Heyrnar og talmeinastöð HH
Hraunbæ 115
110 Reykjavík