Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæslan Fjörður óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum til starfa. Við leitum að lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu heilbrigðisstarfsfólks í lærdómsríku starfsumhverfi.
Um er að ræða ótímabundið starf og er starfshlutfall 100% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag ásamt góðu starfsumhverfi og hjá okkur ríkir góður starfsandi. Á vinnustaðnum starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af kennslu er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Hreint sakavottorð
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Björk Árnadóttir - thelma.b.arnadottir@heilsugaeslan.is - 513 5400
HH Firði lækningar
Fjarðargötu 13 - 15
220 Hafnarfjörður