Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Fjörður
Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ?
Heilsugæslan Fjörður leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf en um er að ræða ábyrgðarmikil og krefjandi verkefni fyrir einstakling sem hefur áhuga á nýsköpun og þróun innan heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín.
Um er að ræða 50 - 60% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.september, eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem mætt er ólíkum þörfum notenda í nærumhverfi þeirra og þeim veittar leiðbeiningar inn í önnur úrræði heilbrigðiskerfisins eftir þörfum. Unnið er markvisst að þróun þjónustu með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga
Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi og hjá okkur ríkir góður starfsandi.
Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni félagsráðgjafa í ábyrgðarminna starf fáist ekki félagsráðgjafi með reynslu í starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
- Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum
- Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum
- Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga
- Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.
Hæfnikröfur
- Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi
- Hefur að jafnaði a.m.k. 2 ára starfsreynslu í faggreininni
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 50 - 60%
Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Björk Árnadóttir - thelma.bjork.arnadottir@heilsugaeslan.is - 513-5400
HH Firði lækningar
Fjarðargötu 13 - 15
220 Hafnarfjörður