Sérfræðingur - sumarafleysing - deild rafrænnar þjónustu
Ert þú að leita að spennandi sumarstarfi í tæknimálum?
Við erum að leita að tæknisinnuðum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund í sumarafleysingu í deild rafrænnar þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Deildin heyrir undir svið fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16. Æskilegt er að viðkomandi geti starfað frá 15. maí til 14. ágúst eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirlit með vél- og hugbúnaði heilsugæslunnar
- Stofnun og breytingar á notendum tölvukerfis HH, skipulagning og vandamálagreining
- Aðstoð við notendur
- Samskipti við sérfræðinga innan og utan stofnunar vegna tölvumála
Hæfnikröfur
- Góð þekking á Microsoft notendahugbúnaði skilyrði
- Reynsla af rekstri tölvubúnaðar kostur
- Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar
- Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
- Brennandi áhugi á tölvum og tækni
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Marinó Ingvarsson - gudmundur.marino.ingvarsson@heilsugaeslan.is - 513-5000
HH Fjármál og rekstur, deild rafrænnar þjónustu
Álfabakki 16
109 Reykjavík