Fulltrúi - Heimahjúkrun HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða fulltrúa í Heimahjúkrun. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vaktaskýrslugerð og skráning fjarvista
  • Þátttaka í ráðningarferli starfsfólks og móttöku nýrra starfsmanna í samráði við svæðisstjóra og stoðsvið HH
  • Ráðgjöf og þjónusta við starfsmenn
  • Umsýsla varðandi breytingar á stöðuhlutfalli, leyfisveitingar o.fl.
  • Umsjón með umsóknum um starfsþjálfun
  • Móttaka og skráning veikindatilkynninga og eftirfylgd
  • Þátttaka í mönnun og skipulagi afleysinga
  • Önnur verkefni sem falin eru af svæðisstjóra

Hæfnikröfur

  • Grunnnám B.A- eða B.S- gráða
  • Reynsla af sambærilegu starfi skilyrði
  • Reynsla af vaktaskýrslugerð skilyrði
  • Þekking og færni í Oracle mannauðskerfi ríkisins skilyrði
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði  drifkraftur og geta til að starfa sjálfstætt
  • Reynsla af starfi í heimahjúkrun skilyrði
  • Metnaður, skipulaghæfni og jákvætt viðmót
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Fríðindi í starfi:

  • Heilsueflingarstyrkur
  • Samgöngustyrkur

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900

HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær

Sækja um starf »