Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Hamraborg

Heilsugæslan Hamraborg óskar eftir að ráða félagsráðgjafa í 50% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl næstkomandi.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hefur áhuga á nýsköpun og þróun innan heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. 

Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem mætt er ólíkum þörfum notenda í nærumhverfi þeirra og þeim veittar leiðbeiningar inn í önnur úrræði heilbrigðiskerfisins eftir þörfum. Unnið er markvisst að þróun þjónustu með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga. 

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar: www.heilsugaeslan.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu 
  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum 
  • Einstaklingsviðtöl og ráðgjöf varðandi framfærsluúrræði, félagsleg úrræði og réttindamál 
  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga 
  • Veitir fræðslu til annarra fagstétta 
  • Handleiðsla annars fagfólks og/eða nema, þegar við á 
  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur, s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl. 
  • Ber ábyrgð á skipulagi og þróun félagsráðgjafarþjónustu innan starfstöðvar

Hæfnikröfur

  • Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi skilyrði
  • Hefur að jafnaði a.m.k. 5 ára starfsreynslu í faggreininni 
  • Reynsla af starfi í heilsugæslu kostur
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50 - 50%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Huldís Mjöll Sveinsdóttir - huldis.mjoll.sveinsdottir@heilsugaeslan.is - null

HH Hamraborg lækningar
Hamraborg 8
200 Kópavogur

Sækja um starf »